Það kemur fyrir að menn vilji streyma RÚV á einhverju öðru en tölvunni. Rúv vefurinn “renderast” ekki nógu vel í Playstation vafranum, og lenti ég í veseni með jQuery í PS3 svo svo ég notaði BBC glow library-ið, og skellti þessu (í orðsins fyllstu) upp til að geta streymt Eurovision forkeppninni á PS3. Hægt er að horfa á gamlar upptökur sömuleiðis þarna.
![]()
Sá um daginn að ein af tilnefningum til nörds ársins hjá Skýrr varðaði rauntímakort Strætó, sem ég vissi ekki að væri til. Þetta fannst mér spennandi og skemmtileg nýjung hjá Strætó.
Fór ég því beint og prófaði það í Android og iPhone. Það virkaði ekki sem mér þótt heldur miður.
Ég ákvað því sem hobby að prófa að láta það virka í símtækjunum því jú vonandi eru einhverjir sem eiga svona fancy síma og taka strætó.
Hægt að fylgjast með og prófa hér.
